Kemur PIM í stað ERP-kerfisins?
Nei, og það á ekki að gera það. ERP-kerfið er áfram uppspretta vörunúmera, verða og birgðastöðu. PIM sækir gögn úr því reglulega, svo bætirðu vörurnar og birtir þær á söluleiðum og kioskum.
Hvernig virka tengingar?
Hver tenging hefur reitavörpun, gildavörpun og eignarhaldsreglur sem ákveða hvað flyst á milli og hvaða kerfi stýrir hverjum reit. Í dag sækir PIM gögn úr DK, WooCommerce og Plytix og birtir í Medusa nánast í rauntíma. Shopify, Wolt og Business Central eru væntanleg.
Hvaða vörur fær söluleið?
Söluleið fær aðeins vörur sem hafa alla reiti sem vörpunin krefst, svo ófullgerðar vörur fara aldrei í birtingu. Vöruhópar flokka vörur eftir reglum fyrir kioska og API, og haldast sjálfkrafa uppfærðir.
Hvaða vörugögn getum við mótað?
Búðu til eins marga eiginleika og þú þarft: stuttan og sniðinn texta, heiltölur, tugabrot, já/nei, dagsetningar, myndefni, fellilista og fjölvalsmerki, flokkað í eiginleikasett. Það hentar jafnt einföldu vöruúrvali í smásölu og flóknum tæknilegum vörulistum.
Get ég notað mína eigin gervigreind?
Já. PIM er byggt í kringum API, svo þú getur tengt Claude, ChatGPT eða eigin líkön til að lesa vörur og skrifa breytingar til baka. Tengdu Claude eða ChatGPT með því að líma inn eina slóð og skrá þig inn með PIM, eða notaðu REST API. Þú getur aftengt hvenær sem er.
Hvað er PIM kiosk?
App sem breytir spjaldtölvu í vöruvafra fyrir verslunina. Það notar vöruhópana þína sem valmynd, keyrir sniðmát í þínu útliti, sýnir biðskjá þegar enginn er að nota það og virkar líka án nettengingar.
Getum við skipt um leið þegar vörulistinn stækkar?
Já. Færðu þig í stærri leið þegar vörulistinn, teymið eða tengingarnar stækka, án þess að byggja vörulíkanið eða tengingarnar upp á nýtt.